Göngutúr í góða veðrinu
Í gær mánudag fóru börnin á Sjávarhól í göngutúr niður á leiksvæðið við geðræktarhúsið. Það voru gerðar alskonar æfingar á leiðinni. Börnin léku sér saman og reyndu á sig og ögruðu sér í tækjunum. Komu einhverjir heim með kúlur hér og þar eftir áskoranir dagsins.