Lögreglan í heimsókn
Í dag fengum við góða heimsókn frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þeir heimsóttu allar deildir leikskólans, gáfu sér góðann tíma til að spjalla við börnin, svara spurningum og vera með smá fræðslu um starf lögreglunnar. Eldri börnin fengu svo að fara út að skoða lögreglubílinn, þar sem sírenurnar og ljósin voru sett á. Öll börn voru svo leyst út með litabók, límmiðum og endurskinsmerkjum.
Heimsóknir sem þessar eru ekki einungis skemmtilegar heldur eru þær mikilvægar. Þær styrkja forvarnarstarf skólans, hjálpa börnunum að kynnast lögreglunni á jákvæðan og öruggan hátt og stuðla að opnum og traustum samskiptum. Með því að fá lögregluna inn í leikskólastarfið lærir barnahópurinn að þau eru til staðar til að hjálpa og að það sé alltaf í lagi að leita til þeirra.
Við þökkum lögreglunni kærlega fyrir komuna.

