Skólanámskrá Heilsuleikskólans Urðarhóls
Í byrjun árs 2024 fórum við í Urðarhóli í þá vinnu að endurnýja skólanámskránna hjá okkur. Hún var gefin út 15. júní 2025 eftir mikla vinnu og erum við stolt af henni. Við leggjum áherslu á að námskráin er lifandi plagg sem verður uppfærð í takt við stefnur og verkefni skólans.
Skólanámskrá
Leikskólar í Kópavogi starfa á grunni Aðalnámskrár leikskóla, sem gefin er út af Mennta- og barnamálaráðuneyti. Aðalnámskráin er grundvallarskjal menntunar í leikskólum og mótar heildarsýn, gildi leikskólastarfs og markmið í leik, námi og þroska barna. Hún tryggir samræmd gæði og jafnan aðgang allra barna að fjölbreyttu, faglegu og uppbyggilegu leikskólastarfi.
Hana er hægt að finna hér : Aðalnámskrá Leikskóla
Á grunni Aðalnámskrár mótar hver leikskóli svo sína eigin skólanámskrá þar sem sérstaða skólans, áherslur og faglegt starf er útfært. Skólanámskráin gerir leikskólanum kleift að endurspegla sínar áherslur, sitt samfélag og sín faglegu gildi með skýrum hætti. Hún er lifandi skjal sem þróast í takt við þarfir barnahópsins, nýjar áskoranir og faglegar áherslur starfsfólks. Í henni er gerð grein fyrir skipulagi náms og leikja, menntunarstefnu skólans og hvernig unnið er að markmiðum Aðalnámskrár í daglegu starfi. Með þessu stuðlar skólanámskráin að gagnsæi, fagmennsku og sameiginlegri sýn allra sem koma að starfinu.
Urðarhóll er heilsuleikskóli, og því fléttast Heilsustefna Unnar Stefánsdóttur inn í allt starf skólans. Heilsustefnan leggur áherslu á vellíðan barna, heilbrigðan lífsstíl, hreyfingu, næringu, skapandi starf og jafnvægi í daglegu lífi. Hún styrkir enn frekar heildræna menntun barna og styður markvisst við líkamlega, félagslega og tilfinningalega færni þeirra.
Það er hægt að lesa sér til um heilsustefnuna hér : Heimasíða Heilsustefnunnar